Áherslumál

Þetta eru mínar áherslur og það sem
að ég brenn fyrir í Hafnarfirði

Öflugri samgöngur

Reykjanesbraut við N1 sett í stokk og gætt að viðhaldi flóttamannavegar

Áframhaldandi Uppbygging

Áframhaldandi uppbygging á íbúðum fyrir ungt fólk, fjölskyldur og eldri borgara

Skilvirkni í rekstri

Hafnarfjörður sé vel rekinn þar sem skilvirkni í rekstri sveitarfélagsins er leiðarljós

Öflugri þjónusta

Öflug nærþjónusta sem styður fjölbreytt og lifandi mannlíf í Hafnarfirði

Menning

Styðja við öflugt, fjölbreytt og aðgengilegt menningarlíf

Öryggi og vellíðan barna

Styðja við markvissar forvarnir i skólastarfi

Um Helgu

Ég er fædd 2. Desember 1994. Ég lauk stúdentsprófi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði árið 2016, tvöfaldri BSc gráðu í sjávarútvegs- og viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2020 og MSc gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Queen Mary University of London.

Ég er varabæjarfulltrúi og sit í hafnarstjórn. Ég skil hvernig rekstur virkar, hversu mikilvæg skýr forgangsröðun fjármuna er og að ákvarðanir séu teknar með langtímahagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.

Helga Loftsdóttir

Ég er uppalin í Hafnarfirði og vil halda áfram öflugri uppbyggingu bæjarins sem hefur staðið yfir síðustu 12 ár undir forystu Sjálfstæðisflokksins - af ábyrgð, krafti og með skýra framtíðarsýn.

Helga Loftsdóttir

Ég hef sinnt ýmsum trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðisflokksins, setið í ráðum og nefndum og áður setið í stjórnum Landssambands Sjálfstæðiskvenna og Sambands Ungra Sjálfstæðismanna. Í dag sit ég í Hafnarstjórn ásamt því að vera formaður Stefnis. Stjórnunarstörf mín utan flokksins er stjórnarseta í Félagi kvenna í sjávarútvegi ásamt háskólapólitíkinni, en ég gegndi þar embætti Varaformanns Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.